Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 14. október 2020 13:50
Aksentije Milisic
Dier ekki með gegn Dönum
Mynd: Getty Images
Eric Dier, leikmaður enska landsliðsins, verður ekki með gegn Dönum í Þjóðadeildinni í kvöld.

Dier spilaði allan leikinn þegar England vann Belgíu á sunnudaginn en eftir þann leik hefur hann átt við smávægileg meiðsli að stríða í lærinu.

Conor Coady, varnarmaður Wolves, er sagður koma innn í liðið fyrir Dier í þriggja manna varnarlínu Englendinga.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Jose Mourinho og hans menn hjá Tottenham en Harry Kane var tæpur fyrir leikinn gegn Belgíu um daginn en Southgate segir þó að hann sé orðin heill heilsu.

Leikur Englands og Danmörkur hefst klukkan 18:45 á Wembley í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner