Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 14. október 2021 13:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hjörvar: Heimir verður ekki þjálfari Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Hjörvar Hafliðason, þáttarstjórnandi Dr. Football, greinir frá því á Twitter í dag að Heimir Hallgrímsson taki ekki við sem þjálfari Stjörnunnar.

„Heimir Hallgrímsson verður ekki þjálfari Stjörnunnar. Mjög metnaðarfull tilraun Garðbæinga og munaði litlu segja menn á Garðaflötinni. Núna eru Stjörnumenn í alvöru veseni með að finna þjálfara," skrifar Hjörvar.

Stjarnan hefur verið orðað við Jón Þór Hauksson, Ágúst Gylfason og Ólaf Kristjánsson.

„Við erum að vinna í því að koma þjálfaramálunum áfram. Ég get staðfest það að Stjarnan klárar þjálfaraferlið sitt í þessari viku," sagði Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, við Fótbolta.net í gær.

Sjá einnig:
KSÍ hefur ekki rætt við Heimi


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner