Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. október 2021 11:40
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Kata Jak heiðursgestur bikarúrslitaleiksins
Guðni Th. Jóhannesson og Katrín Jakobsdóttir á landsleik á Laugardalsvelli.
Guðni Th. Jóhannesson og Katrín Jakobsdóttir á landsleik á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, verður heiðursgestur á bikarúrslitaleik Víkings og ÍA á Laugardalsvelli á laugardaginn. Leikurinn hefst klukkan 15:00 og miðasala fer fram gegnum Tix.is.

Um bikarkeppni KSÍ
Bikarkeppni KSÍ var fyrst haldin árið 1960 og er Mjólkurbikarinn í ár því 62. bikarkeppnin frá upphafi. Fyrstu árin fór keppnin að mestu fram á haustin og jafnvel inn á vetrarmánuðina og var þá jafnan leikið á Melavellinum í Reykjavík. Síðan árið 1975 hefur úrslitaleikurinn hins vegar farið fram á Laugardalsvelli.

Sigursælasta liðið í bikarkeppni KSÍ frá upphafi er KR. Alls hafa KR-ingar unnið bikarinn 14 sinnum. Næstir koma Valsmenn með 11 og Skagamenn með 9 bikarsigra og þá Framarar með 8 bikarmeistaratitla. ÍBV hefur unnið titilinn 5 sinnum, Keflavík 4 sinnum, FH, Fylkir og Víkingur R. tvisvar. Breiðablik, ÍBA og Stjarnan hafa unnið 1 bikarmeistaratitil hvert félag.

Fyrri viðureignir félaganna í bikarkeppni KSÍ
Af 82 innbyrðis mótsleikjum liðanna sem mætast í úrslitum í ár eru níu bikarleikir.

Fyrstu tveir leikirnir fóru fram á Melavelli árið 1971 og vann Víkingur R. þá báða. Síðan þá hafa liðin mæst sjö sinnum og hefur ÍA unnið þá alla.

Síðasta viðureign liðanna í bikarkeppni KSÍ var 10. júlí 2007 í 16 liða úrslitum. ÍA vann þann leik 2-1.

Leið liðanna í bikarúrslitin

ÍA
32 liða úrslit - ÍA - Fram 3-0
16 liða úrslit - ÍA - FH 1-0
8 liða úrslit - ÍR - ÍA 1-3
Undanúrslit - ÍA - Keflavík 2-0

Víkingur R.
32 liða úrslit - Víkingur R. - Sindri 3-0
16 liða úrslit - Víkingur R. - KR 3-1
8 liða úrslit - Fylkir - Víkingur R. 0-0 (0-1 eftir framlengingu)
Undanúrslit - Vestri - Víkingur R. 0-3
Hvernig fer Víkingur - Breiðablik á sunnudag?
Athugasemdir
banner
banner