Bayern kaupir Nestory Irankunda (Staðfest)

Nestory Irankunda.

Mynd: Bayern München

Nestory Irankunda.

Mynd: Bayern München
Þýska stórveldið Bayern München hefur gengið frá kaupum á ástralska ungstirninu Nestory Irankunda.
Hann kemur til Bayern frá Adelaide United í heimalandi sínu.

Þessi 17 ára gamli framherji gengur formlega til liðs við Bayern þann 1. júlí næstkomandi en það er talað um að kaupverðið sé um 3 milljónir evra. Það gæti svo hækkað síðar meir ef leikmaðurinn stendur sig vel.
Jochen Sauer, yfirþjálfari akademíunnar hjá Bayern, segir: „Nestory er búinn að vera á radarnum hjá okkur í langan tíma og við erum ánægðir að hafa náð samkomulagi við bæði hann og Adelaide United."
„Nestory er gríðarlega snöggur kantmaður sem er góður í því að rekja boltann og góður í að klára færi. Það er mikill kraftur sem býr í honum. Við erum sannfærðir um að hann muni ná langt og að hann geti tekið næst skref hjá okkur."
Irankunda, sem á ættir að rekja til Tansaníu, er ástralskur U17 landsliðsmaður en hann hefur nú þegar verið valinn í A-landsliðið þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur spilað 39 leiki fyrir aðallið Adelaide og skorað níu mörk.