Fotbolti.net
14.11.23 - 16:18
Ívan Guðjón Baldursson

Rudi Garcia rekinn frá Napoli - Mazzarri ráðinn í staðinn (Staðfest)

Rudi Garcia rekinn frá Napoli - Mazzarri ráðinn í staðinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalíumeistarar Napoli hafa staðfest önnur þjálfaraskipti félagsins á innan við hálfu ári eftir að hafa unnið langþráðan Ítalíumeistaratitil.
Luciano Spalletti hætti í sumar eftir ósætti við eiganda félagsins og tók við ítalska landsliðinu. Franski Spánverjinn Rudi Garcia var ráðinn í staðinn en byrjun liðsins undir hans stjórn þótti ekki nægilega góð og hefur hann verið rekinn eftir slæma hrinu úrslita.

Napoli hefur tapað tveimur og gert þrjú jafntefli í síðustu fimm heimaleikjum sínum og þykir það ekki viðunandi þar á bæ. Garcia er rekinn eftir vandræðalegt 0-1 tap á heimavelli gegn Empoli.

Walter Mazzarri tekur við stjórn en hann þekkir vel til hjá Napoli og í ítalska boltanum. Mazzarri er 62 ára gamall og var við stjórnvölinn hjá Napoli frá 2009 til 2013. Hann hefur meðal annars stýrt Inter, Sampdoria og Cagliari í ítalska boltanum og reyndi hann fyrir sér hjá Watford í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2016-17.

Mazzarri stýrði síðast Cagliari tímabilið 2021-22 en var rekinn eftir slæmt gengi.

Hann tekur við Napoli í fjórða sæti ítölsku deildarinnar, með 21 stig eftir 12 umferðir. Þá er liðið í góðri stöðu í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Samningur Mazzarri við Napoli gildir út núverandi keppnistímabil.

Talið er að Igor Tudor hafi verið efstur á óskalista Aurelio De Laurentiis, eiganda Napoli, en Serbinn heimtaði tveggja ára samning. De Laurentiis var ekki reiðubúinn til að bjóða það.

Rudi Garcia rekinn frá Napoli - Mazzarri ráðinn í staðinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Lecce000
1Juventus2+56
2Bologna000
2Inter2+56
3Frosinone000
3Bologna2+14
4Genoa000
4Milan1+33
5Napoli1+23
5Napoli000
6Udinese000
6Chievo1+13
7Monza000
7Sampdoria1+13
8Roma2-13
8Sassuolo000
9Torino101
9Venezia000
10Lazio101
10Roma000
11Inter000
11Sassuolo101
12Juventus000
12Spal101
13Fiorentina000
13Genoa2-21
14Udinese1-10
14Milan000
15Atalanta1-10
15Atalanta000
16Benevento2-20
16Lazio000
17Cagliari000
17Verona1-20
18Torino000
18Cagliari1-30
18Cremonese38-2534
19Crotone1-30
19Parma000
19Verona38-3621
20Pisa38-4518
20Fiorentina1-30
20Como000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.