Víðir Freyr til Fram (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram
Fram er búið að krækja í Víði Frey Ívarsson, sóknarþenkjandi leikmann sem kemur úr röðum HK.
Víðir er aðeins 19 ára gamall og lék hann með Hetti/Hugin á láni á síðustu leiktíð. Þar skoraði hann 5 mörk í 21 leik í 2. deild.
Víðir er uppalinn hjá Hetti á Egilsstöðum en spilaði með yngri flokkum Breiðabliks, Fjölnis og HK á táningsárunum.
Nú reynir hann fyrir sér hjá Fram sem bjargaði sæti sínu í efstu deild í haust. Það verður áhugavert að fylgjast með þróun Víðis hjá nýju félagi á næsta ári.
„Tökum vel á móti honum Framarar og styðjum hann í því að taka sín næstu skref á ferlinum," segir meðal annars í tilkynningu frá Fram.