Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. janúar 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Atletico Madrid ætlar að fá Cavani eða Lacazette
Alexandre Lacazette
Alexandre Lacazette
Mynd: Getty Images
Miguel Angel Gil Marin, framkvæmdastjóri Atletico Madrid, fundaði í gær með Nasser Al Khelaifi, forseta PSG. Atletico er að reyna að fá Edinson Cavani framherja PSG í sínar raðir.

Ef samningar nást ekki þá ætlar Atletico að snúa sér að Alexandre Lacazette framherja Arsenal.

Verði af félagaskiptum Lacazette til Atletico Madrid gæti Thomas Lemar farið til Arsenal í skiptum.

Lemar hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann kom til Atletico Madrid frá Mónakó sumarið 2018.

Málin hjá Atletico ættu að skýrast betur á næstu dögum en Cavani hefur lengi verið á óskalista félagsins.
Athugasemdir
banner
banner