Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. janúar 2020 09:10
Magnús Már Einarsson
Gedson Fernandes til Tottenham (Staðfest)
Mynd: Tottenham
Tottenham hefur fengið miðjumanninn Gedson Fernandes í sínar raðir á láni frá Benfica.

Lánssamingurinn gildir í eitt og hálft ár en eftir það getur Tottenham keypt leikmanninn á 42,76 milljónir punda.

Fernandes hefur verið orðaður við Tottenham undanfarnar vikur en West Ham hafði einnig augastað á honum.

Hinn 21 árs gamli Fernandes er uppalinn hjá Benfica en hann hefur skorað þrjú mörk í 53 leikjum með aðalliði félagsins.

Feranandes á tvo leiki að baki með landsliði Portúgal sem og fjölda leika með yngri landsliðunum.

Fernandes mun leika í treyju númer 30 hjá Tottenham.


Athugasemdir
banner
banner