Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 15. janúar 2020 15:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Afturelding 
Jon Tena aftur til Aftureldingar (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding hefur náð samkomulagi við spænska markvörðinn Jon Tena um að leika með félaginu á komandi tímabili.

Tena lék með Aftureldingu síðari hluta tímabilsins 2019 og stóð sig afar vel. Hann var einn af lykilmönnum liðsins á lokasprettinum og hjálpaði Aftureldingu að halda sæti sínu í deildinni.

Tena er 27 ára gamall og uppalinn hjá Real Sociedad. Hann lék 10 leiki með Aftureldingu síðasta sumar og hélt hreinu í fjórum þeirra.

„Jon er mjög góður markvörður og hann var öryggið uppmálað í þeim leikjum sem hann spilaði á síðasta tímabili. Jon er flottur karakter sem kom vel inn í hópinn á síðasta tímabili og það verður gaman að sjá hann aftur í Mosfellsbæ,“ segir Magnús Már Einarsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Aftureldingu.

Framundan eru leikir hjá Aftureldingu í Fótbolta.net mótinu og svo hefst Lengjubikarinn í febrúar. Tena kemur til liðs við Aftureldingu þann 1. febrúar.
Athugasemdir
banner
banner