Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 15. janúar 2020 21:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nacho Heras til Keflavíkur (Staðfest)
Mynd: Keflavík
Nacho Heras Anglada mun spila með Keflavík á komandi tímabili. Þetta var staðfest á fésbókarsíðu knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Nacho skrifar undir tveggja ára samning við Keflavík. Þessi reynslumikli varnarmaður var síðast á mála hjá Leikni R. og lék 19 leiki í Inkasso-deildinni í fyrra.

Hann var áður á mála hjá Ólafsvíkur Víkingum og spilaði með þeim í Pepsi-deildinni sumarið 2017.

Nacho mun koma til liðs við Keflavíkur-liðið í febrúar.

Af fésbókarsíður Knattspyrnudeildar Keflavíkur:
Nacho mun vafalítið styrkja ungt Keflavíkur liðið fyrir baráttuna næsta sumar. Knattspyrnudeildin býður Nacho velkomin til liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner