West Ham hefur keypt markvörðinn Darren Randolph aftur í sínar raðir frá Middlesbrough.
Hinn 32 ára gamli Randolph skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við West Ham.
Hinn 32 ára gamli Randolph skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við West Ham.
Randolph þekkir vel til hjá Hömrunum en hann var hjá West Ham 2015-2017 áður en hann fór til Middlesbrough.
Randolph mun veita Lukasz Fabianski og David Martin samkeppni hjá West Ham.
Fabianski verður á meiðslalistanum næstu vikurnar en fjarvera hans hefur haft mikil áhrif á Hamrana í vetur.
Athugasemdir