Fotbolti.net
15.01.24 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Murielle kveður Tindastól - Á leið í Fram

Murielle skoraði átta mörk þegar Tindastóll hélt sæti sínu í Bestu deildinni í fyrra.

Murielle skoraði átta mörk þegar Tindastóll hélt sæti sínu í Bestu deildinni í fyrra.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hertz
Markamaskínan Murielle Tiernan setti inn færslu á Instagram í gærkvöldi þar sem hún kvaddi Tindastól eftir sex ára veru þar.

„Hef átt besta tíma lífs míns spilandi með Tindastóli við hlið besta fólks í heimi síðustu sex árin. Ég mun aldrei hætta því að segja takk fyrir við alla sem hafa gert Sauðárkrók að heimili mínu. Ekkert nema ást til ykkar allra og þið munuð alltaf eiga ykkar stærsta aðdáanda í mér. Áfram Tindastóll að eilífu," skrifar Murielle í færslunni.
Murielle er 29 ára framherji sem kom til Tindastóls fyrir tímabilið 2018. Hún hefur í 129 leikjum í öllum keppnum skorað 117 mörk. Hún skoraði 24 mörk í 14 leikjum í 2. deild og á að baki 64 mörk í 51 Lengjudeildinni.

Orri Rafn Sigurðarson greindi frá því á X um helgina að Murielle væri að ganga í raðir Fram í Lengjudeildinni.

Þar hittir hún fyrir þjálfarann Óskar Smára Haraldsson sem þjálfaði hana árið 2021 hjá Tindastóli. Fram endaði í 7. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra sem nýliði í deildinni.

Best í 2. deild: Ævintýrakona sem lætur veikindi ekki stoppa sig
TENGT EFNI

Best í 2. deild: Ævintýrakona sem lætur veikindi ekki stoppa sig



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.