Pep Guardiola segir að miðjumaðurinn Kevin de Bruyne gæti snúið aftur í þessari viku.
De Bruyne hefur verið að glíma við meiðsli síðustu vikur en hann spilaði síðast í sigri á Aston Villa 20. janúar.
De Bruyne gæti byrjað að æfa aftur á fullu með liðinu í vikunni en Guardiola vill ekki taka neinar áhættur með hann.
„Ég vil vera viss, við viljum vera viss og hann vill vera viss um að þegar hann kemur til baka þá sé það vegna þess að hann er algjörlega búinn að jafna sig og klár í slaginn," sagði Guardiola.
Guardiola þarf í rauninni ekkert að drífa sig með De Bruyne því liðið hefur spilað frábærlega án hans með þýska miðjumanninn Ilkay Gundogan fremstan í flokki. City hefur unnið hvern leikinn á fætur öðrum og er með gott forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Er til eitthvað dæmi í tónlistarsögunni þar sem besti hljóðfæraleikarinn fer úr bandinu en bandið verður betra? #DeBruyne
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) February 13, 2021
Athugasemdir