Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 15. febrúar 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
FH semur við Elísu Lönu
Mynd: FH
Elísa Lana Sigurjónsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH.

Elísa Lana er fædd árið 2005 og þykir mjög efnilegur leikmaður.

Hún er öflugur sóknarmaður sem þrátt fyrir ungan aldur hefur þegar spilað 10 leiki fyrir meistaraflokk FH í efstu deild. Elísa Lana hefur verið í hóp yngri landsliða Íslands og er nú í hóp U17 ára landsliðsins.

„Það er okkur FH-ingum mikið ánægjuefni að Elísa Lana hafi skrifað undir samning við félagið þar sem hún er gríðarlega efnileg knattspyrnukona sem á framtíðina fyrir sér. Án nokkurs vafa mun hún láta verulega að sér kveða í baráttunni næsta sumar," segir í tilkynningu FH.

FH féll úr Pepsi Max-deildinni síðasta sumar og mun spila í Lengjudeildinni í sumar.


Athugasemdir
banner