„Eitt það ómerkilegasta sem ég hef séð á 35 ára ferli í fótbolta“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórir Hákonarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Eitt það ómerkilegasta sem ég hef séð á 35 ára ferli í fótbolta, virkilega lélegt,“ segir Þórir Hákonarson um yfirlýsingu fyrirliða úr Bestu deild-kvenna, en hann hefur sinnt hinum ýmsu verkefnum fyrir ÍTF (Íslenskan toppfótbolta) síðustu ár.
ÍTF hefur fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir vinnubrögð sín í kringum kvennadeildina. Pétur Pétursson, þjálfari kvennaliðs Vals, var duglegur að gagnrýna vinnubrögð þeirra á síðasta ári og hélt það áfram nú stuttu fyrir mót er ÍTF birti auglýsingu fyrir deildirnar.
Kynjakvótinn í auglýsingunni var ójafn og fengu leikmenn úr Bestu deildinni takmarkað hlutverk.
Ekki nóg með það þá er aðeins Fantasy-leikur fyrir karladeildina en ÍTF bar fyrir sig að því miður væri það ekki í boði fyrir kvennadeildina þar sem gögn Opta bjóða ekki upp á það.
Leikmenn deildarinnar voru þá beðnir um að mæta í höfuðstöðvar ÍTF á mánudag milli 18:00-20:00 til að búa til markaðsefni, en það kom sér illa því Valur og Stjarnan eigast einmitt við í Meistarar meistaranna klukkan 19:30 sama dag.
Fyrirliðar úr Bestu deild kvenna sendu því frá sér yfirlýsingu
í kvöld og sögðu vinnubrögð ÍTF í besta falli skammarleg. Því hafa leikmenn ákveðið að mæta ekki til ÍTF á mánudag í mótmælaskyni en Þórir, sem hefur sinnt hinum ýmsu verkefnum fyrir ÍTF síðustu ár, finnst þetta afar lélegt.
Þórir var áður framkvæmdastjóri KSÍ frá 2007 til 2015. Þá starfaði hann sem íþróttastjóri Þróttar R. frá 2015 til 2022.
„Hvað finnst þér svona svakalega ómerkilegt við þetta?“ spurði Guðmundur Benediktsson hjá Stöð 2 Sport, Þóri á Twitter og svaraði hann því.
„Að segja vinnubrögð ÍTF séu skammarleg og hvetja leikmenn til að mæta ekki til kynningar a deildinni. Það er virkilega ómerkilegt og ýmislegt annað í þessari dónalegu yfirlýsingu,“ sagði Þórir í svari til Guðmundar sem sagði þá: „Fyrir okkur sem stöndum fyrir utan þetta virðist kvennaknattspyrnan bara vera búin að fá nóg eftir atburði síðustu vikna,“ .
Þórir segir leikmenn vera með dónaskap við þá sem eru að reyna að gera gott úr þessu.
„Hugsanlega Gummi, þú veist líklega betur en flestir að fjármunir ráða miklu í þessum bransa, og þegar hvatt er til þess að taka ekki þátt í að búa til fjármuni með kynningu og hrauna yfir þá aðila sem eru að reyna þá er það bara dónaskapur og virkilega lélegt,“ sagði Þórir í lokin.

Hvað finnst þér svona svakalega ómerkilegt við þetta?
— Gummi Ben (@GummiBen) April 15, 2023

Þórir Hákonarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð