Lækka verðmiðann á Garnacho - Arsenal hefur áhuga á Coman - Frankfurt setur verðmiða á Ekitike
   þri 15. apríl 2025 13:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ramsdale á lista hjá Man Utd
Aaron Ramsdale.
Aaron Ramsdale.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Manchester United er á meðal þeirra félaga sem er að fylgjast með enska landsliðsmarkverðinum Aaron Ramsdale. Þetta herma heimildir The Sun.

Man Utd er í leit að markverði þar sem þeir sem eru fyrir eru ekki nægilega góðir.

Ramsdale hefur leikið með Southampton á þessu tímabili en liðið er nú þegar fallið úr ensku úrvalsdeildinni. Ramsdale var keyptur þangað fyrir yfirstandandi leiktíð.

Ramsdale er mjög áhugasamur um að vera áfram í ensku úrvalsdeildinni svo hann geti haldið sæti sínu í enska landsliðinu.

Hann hefur einnig verið orðaður við Bournemouth, Newcastle og West Ham.
Athugasemdir
banner
banner