Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 15. maí 2019 17:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Birta lánuð aftur í FH (Staðfest)
Birta í leik með FH á síðustu leiktíð.
Birta í leik með FH á síðustu leiktíð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur fengið Birtu Georgsdóttir á láni frá Stjörnunni fyrir átökin í Inkasso-deild kvenna.

Birta, sem er fædd 2002, var einnig í láni hjá FH á síðustu leiktíð og spilaði hún 12 leiki með FH í fyrra þegar liðið féll úr Pepsi-deildinni.

Birta hefur komið við sögu í tveimur leikjum Stjörnunnar í Pepsi Max-deild kvenna í sumar.

Hún kom inn á sem varamaður í 1-0 tapinu Val í gær og einnig kom hún inn á sem varmaður gegn Selfossi í 1. umferð.

FH er spáð 1. sæti í Inkasso-deildinni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner