mið 15. maí 2019 17:00
Arnar Daði Arnarsson
Oddur og Vilhjálmur í Mídas (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Oddur Björnsson og Vilhjálmur Pálmason fyrrum leikmenn Þróttar hafa gengið í raðir Mídasar í 4. deildinni.

Oddur lék aðeins tvo leiki með Þrótti í Inkasso-deildinni síðasta sumar en báðir voru þeir hættir vegna anna í vinnu. Síðast lék Vilhjálmur með Þrótti sumarið 2017.

Oddur er miðjumaður sem á 147 meistaraflokksleiki að baki með Þrótti og skorað í þeim 21 mark.

Vilhjálmur Pálmason er kantmaður sem líkt og Oddur hefur aðeins leikið með Þrótti á sínum ferli. Hann hefur leikið 160 leiki fyrir Þrótt og skorað 20 mörk.

Báðir eru þeir fæddir árið 1991 og eru komnir með leikheimild með Mídas og geta leikið næsta leik með liðinu í 4.deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner