lau 15. maí 2021 23:15
Victor Pálsson
43 ára Buffon er með tilboð
Mynd: Getty Images
Gianluigi Buffon mun ákveða framtíðina eftir tæplega mánuð en hann mun yfirgefa lið Juventus í sumar.

Þessi fyrrum heimsmeistari er 43 ára gamall í dag en hann mun ekki skrifa undir framlengingu í Tórínó.

Það er þó ekki víst að Buffon sé að leggja hanskana á hilluna en hann hefur nú þegar fengið tilboð frá liðum.

„Varðandi mína framtíð þá mun ég taka 20 til 25 daga að ákveða mig," sagði Buffon í samtali við DAZN.

„Ég hef fengið tilboð. Ég vil sjá hvort ég hafi metnaðinn og hungrið í að verða Buffon aftur. Ég hef reynt að hvetja aðra áfram og einhver vill gera það fyrir mig þá er það velkomið."

„Ef ekki þá mun ég hætta að spila og það mjög friðsamlega."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner