Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir, leikmaður Djurgården, var spákona Fótbota.net fyrir aðra umferð Pepsi Max-deildar kvenna. Guðrún var með núll rétta af fjórum en fimmta leiknum, viðureign Fylkis og Tindastóls var frestað.
Eva Björk Benediktsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, spáir í leikina í þriðju umferð deildarinnar.
„Ógeðslega erfitt að spá í þessa deild, ekkert gefið þessa stundina," segir Eva.
Eva Björk Benediktsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, spáir í leikina í þriðju umferð deildarinnar.
„Ógeðslega erfitt að spá í þessa deild, ekkert gefið þessa stundina," segir Eva.
Tindastóll 1 - 2 ÍBV (Laugardag 13:00)
Eyjakonur hljóta að vera vel peppaðar eftir góðan sigur á Breiðabliki í síðustu umferð. Engu að síður get ég vottað fyrir það að það er alltaf erfitt að mæta á Sauðárkrók. Þetta verður spennandi landsbyggðarslagur sem ÍBV tekur 1-2.
Valur 4 - 0 Fylkir (Laugardag 14:00)
Það virðist allt geta gerst í þessari deild þetta tímabilið. Ég held hins vegar að lítið komi á óvart í þessum leik og Valskonur taki þetta nokkuð örugglega á heimavelli 4-0.
Keflavík 1 - 0 Þróttur R. (Laugardag 14:00)
Keflavík hefur ekki skorað í fyrstu tveimur leikjunum en ég ætla að reikna með að fyrsta markið komi í hús gegn Þrótti. Þróttarar eru ekkert að fá of mörg mörk á sig og ég spái 1-0 sigri Keflavíkur í þessum leik.
Selfoss 2 - 0 Stjarnan (Laugardag 16:00)
Selfoss er á mikilli siglingu og ætla að bæta upp fyrir stóru orðin sem ekki stóðust síðasta sumar. Held þær verði í bullandi titilbaráttu þetta sumarið. Þægilegur 2-0 sigur á heimavelli og Hólmfríður Magnúsdóttir setur hann.
Breiðablik 3 - 1 Þór/KA (Laugardag 16:00)
Blikakonur mæta dýrvitlausar í þennan leik eftir tap í síðustu umferð í Eyjum. Þær eru ekki hrifnar að því að fá á sig fjögur mörk. Held ég verði því miður að spá Blikum öruggum sigri gegn mínum konum í Þór/KA 3-1.
Fyrri spámenn:
Guðrún Arnardóttir - 0 réttir (1 frestað)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir