Fotbolti.net
15.06.19 - 18:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óskar Örn: Missum okkur ekki yfir því í augnablikinu

Auglýsing
Óskar Örn: Missum okkur ekki yfir því í augnablikinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er hrikalega sáttur. Við vorum flottir í dag og þetta var góður sigur," sagði Óskar Örn Hauksson, fyrirliði KR, eftir sigur á ÍA í Pepsi Max-deildinni í dag.
KR vann aðeins einn leik í fyrstu fjórum umferðunum en þeir eru núna komnir með fjóra sigra í röð og eru á toppi deildarinnar með 17 stig, einu stigi meira en ÍA og Breiðablik.

„Það er gott að vera á toppnum, en það snýst um að vera þar á réttum tíma. Við missum okkur ekki yfir því í augnablikinu, en það er gott að vera þar."

„Við vorum flottir í fyrri hálfleik. Það er dottið í logn núna, en það var vindur í leiknum og leikurinn litaðist aðeins af því. Þetta var flott," sagði Óskar.

„Það er erfitt að spila á móti þeim en þjálfararnir lögðu leikinn vel upp. Við vorum vel undirbúnir fyrir þennan leik og ég held að það hafi sést."

Viðtalið er hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.