Helgi Sig: Hann tekur hann með hendi og nánast ver hann á línunni
Auglýsing

Er þetta víti?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi var ósáttur með að fá ekki vítaspyrnu í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er þetta víti?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík tók á móti Fjölni á Stakkavíkurvellinum í Grindavík í kvöld og þurfti að gera sér að góðu að lúta í gras eftir 1-0 tap. Helgi Sigurðsson þjálfari Grindavíkur var til viðtals við Fótbolta.net og fór vel yfir hlutina en hann var alls ekki sáttur með nokkur atriði úr leiknum.
„Ég er bara mjög svekktur, það eru augljós tvö víti í þessum leik og ekki nóg með það heldur átti það að vera víti og rautt. Hann tekur hann með hendi og nánast ver hann á línunni.“ Sagði Helgi um atvik sem átti sér stað á 53. mínútu leiksins þar sem boltinn fór í hönd Hans Viktors Guðmundssonar en mynd af atvikinu má sjá hér í fréttinni. Helgi hélt áfram að ræða atvikið og frammistöðu Jóhanns Inga dómara leiksins.
„Auðvitað er maður svekktur þegar dómarar ná ekki svona, við erum ekki að tala um brot út á miðjum velli. Ég segi yfirleitt aldrei neitt um dómara en nú verð ég bara. “
Grindvíkingar voru án margra lykilmanna í leiknum í dag en hvernig fannst Helga spilamennska liðsins vera í fjarveru þeirra?
„Vissulega vantar fjóra leikmenn sem hafa verið að spila flestar mínútur þegar þeir eru heilir en engu að síður þá erum við með stóran hóp. Við erum ellefu inn á vellinum og það þýðir ekkert að fela sig á bakvið það. Meiðsli eru hjá öllum liðum, auðvitað er það óheppilegt að það séu fjórir svona sterkir leikmenn frá á sama tíma en við eigum ekkert að vorkenna okkur yfir því. Við eigum að vera með nógu gott lið til að höndla það. “
Þótt varnarlínan hafi verið að leka í síðustu leikjum hefur Grindavík ekki fengið á sig mörg mörk þetta sumarið. Vandamál liðsins hefur fremur verið á hinum enda vallarins þar sem liðinu hefur gengið illa að skora mörk. Hvað er til ráða fyrir Helga og hans menn þar?
„Það er heildarleikur liðsins og að koma með marga menn upp völlinn og fylla teiginn. Það er áhyggjuefni hversu fáa menn við erum með inn í teignum. Við getum ekki sett alla pressuna á að senterar skori öll mörkin, við þurfum að fá fleiri mörk frá fleiri leikmönnum í liðinu.“
Sagði Helgi en allt viðtalið má sjá hér að ofan.