15.06.25 - 09:30
Stefán Marteinn Ólafsson
Leiðin úr Lengjunni: Áhyggjur aukast í Árbænum og ÍR tók Breiðholtsslaginn
Auglýsing


Mynd: Fótbolti.net - Stefán Marteinn


Mynd: Fótbolti.net - Stefán Marteinn

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.
Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Anton Freyr Jónsson.
Í þessum þætti rennum við yfir áttundu umferð þar sem ÍR vann Breiðholtsslaginn og eru áfram taplausir ásamt Njarðvíkingum sem vinna Þór. Áhyggjur í Árbænum þegar þeir missa leik gegn Grindavík í jafntefli og Völsungur heldur áfram að gera gott mót með sterku stigi gegn Keflavík. HK vinnur Fjölni og Þróttur vinnur Selfoss sem var fyrirfram eftir bókinni.
