Ísak Óli Ólafsson, fyrirliði Keflavíkur í Inkasso-deildinni stóðst um helgina læknisskoðun hjá danska úrvalsdeildarfélaginu, SönderjyskE.
Tilkynnt var um það í júní mánuði að Ísak Óli væri á leiðinni til danska félagsins en Ísak Óli mun leika með Keflvíkingum í Inkasso-deildinni til lok ágústs en þá flytur hann til Danmerkur.
Tilkynnt var um það í júní mánuði að Ísak Óli væri á leiðinni til danska félagsins en Ísak Óli mun leika með Keflvíkingum í Inkasso-deildinni til lok ágústs en þá flytur hann til Danmerkur.
Ísak Óli er 18 ára gamall og hefur verið lykilmaður í liði Keflavíkur undanfarin ár þrátt fyrir ungan aldur. Hann er fæddur 2000 og hefur verið fastamaður í byrjunarliðinu síðan sumarið 2017.
Ísak Óli stóðst læknisskoðun og skrifaði undir hjá @SEfodbold um helgina ? pic.twitter.com/gtnIZyrn99
-- Gulli Tomasson (@Gullitomm) July 14, 2019
Sjá einnig:
Ísak Óli: Markmiðið alltaf að spila erlendis
Ísak Óli leikur með Keflavík til loka ágústmánaðar
Ísak Óli til SönderjyskE (Staðfest)
Athugasemdir