Láki: Það væri gaman að sjá xG-ið úr þessum leik


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Það eru blendnar tilfinningar. Þetta var jafn leikur, tölurnar segja að hann hafi verið ójafn en þetta var mjög jafn leikur. Fjölnir taldist mér til skora þrjú mörk í fyrri hálfleik úr svona fjórum færum en við förum illa með færin svo kálar þetta fjórða mark leiknum," sagði Láki.
Varnarleikur liðsins var ekki uppá marga fiska í dag.
„Þetta voru rosalega ódýr mörk sem við fengum á okkur í fyrri hálfleik þannig að varnarlega var þetta ekki nógu gott en sóknarlega, við fengum alveg urmul af færum."
Þórsarar hefðu getað verið í betri stöðu í hálfleik en Sigurjón Daði í marki Fjölnis átti frábæran leik.
„Við erum svolítið barnalegir en svo verðum við að gefa Fjölni það að þeir kláruðu sínar sóknir mjög vel. Sóknarlega fengum við það mikið af færum að það væri gaman að sjá xG-ið úr þessum leik en það er erfitt að vinna fótboltaleiki þegar maður fær svona mikið af mörkum á sig," sagði Láki.



