Fotbolti.net
03.07.26 - 21:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Aron Elí hetja Aftureldingar - Njarðvík með sterkan sigur

Aron Elí Sævarsson

Aron Elí Sævarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
Fjórir leikir fóru fram í 12. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld.

ÍR fékk Aftureldingu í heimsókn þar sem Aron Elí Sævarsson var hetja gestanna en hann skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á annarri mínútu.

Óðinn Bjarkason var nálægt því að bæta við fyrir Aftureldingu gegn gömlu félögunum en skotið yfir fyrir framan opið markið. Orri Bjarkason hefði síðan getað jafnað metin en skaut yfir.
Njarðvík vann steerkan sigur á Þrótti en Oumar Diouck var hetjan. Þróttur fellur niður í 3. sæti en Njarðvík er í 7. sæti.

Fylkir stökk upp í 2. sæti með sigri á Ægi. Fylkir náði fjögurra marka forystu en Jordan Adeyemo skoraði tvennu fyrir Ægi en það dugði ekki til.

Þá var Andri Freyr Jónasson hetja Gróttu þegar liðið vann sterkan sigur á HK.

Það var hasar þegar Viktor Helgi Benediktsson fékk rautt spjald. Caden McLagan brást illa við og fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.

ÍR 0 - 1 Afturelding
0-1 Aron Elí Sævarsson ('2 , víti)
Lestu um leikinn

Ægir 2 - 4 Fylkir
0-1 Máni Austmann Hilmarsson ('12 )
0-2 Tumi Fannar Gunnarsson ('14 )
0-3 Guðmundur Tyrfingsson ('37 )
0-4 Arnór Breki Ásþórsson ('40 )
1-4 Jordan Adeyemo ('45 )
2-4 Jordan Adeyemo ('49 )
Lestu um leikinn

Grótta 2 - 1 HK
1-0 Andri Freyr Jónasson ('4 )
2-0 Andri Freyr Jónasson ('20 )
2-0 Jóhann Þór Arnarsson ('23 , misnotað víti)
2-1 Aron Kristófer Lárusson ('31 )
Rautt spjald: ,Viktor Helgi Benediktsson , HK ('76)Caden Robert McLagan, Grótta ('76) Lestu um leikinn

Njarðvík 1 - 0 Þróttur R.
1-0 Oumar Diouck ('73 )
Rautt spjald: Baldur Hannes Stefánsson , Þróttur R. ('32) Lestu um leikinn
Andri Freyr Jónasson

Andri Freyr Jónasson

Canon

Mynd: Grótta

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir14+1230
4HK15+1028
5Grótta14+122
6Vestri15-521
7Njarðvík14+120
8Leiknir R.15-419
9Grindavík14-314
10ÍR15-1113
11Völsungur14-178
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.