Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 15. júlí 2022 21:24
Ívan Guðjón Baldursson
Þróttur R. fær Aron Snæ frá Fram (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur R. var að krækja í Aron Snæ Ingason á lánssamningi frá Fram sem gildir út tímabilið.


Aron Snær er fæddur 2001 og hefur komið við sögu í fjórum leikjum í Bestu deildinni í sumar.

Hann leikur sem framherji og skoraði 3 mörk í 14 leikjum að láni hjá Njarðvík á seinni hluta síðasta sumars. 

Þróttur er í toppbaráttu 2. deildar og gæti Aron reynst ansi mikilvægur liðsstyrkur þar. 

Þróttarar eru með 25 stig eftir 11 umferðir og deila öðru sæti deildarinnar með Ægi frá Þorlákshöfn.

Aron Snær er með 62 skráða leiki á vefsíðu KSÍ og 12 mörk.


Athugasemdir
banner