Leicester fær Doyle frá Man City (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Leicester City er búið að tryggja sér varnarmanninn Callum Doyle á lánssamningi frá Englandsmeisturum Manchester City sem gildir út tímabilið.
Doyle er 19 ára gamall og er partur af enduruppbyggingunni sem er að eiga sér stað hjá Leicester eftir fall úr efstu deild.
Doyle hefur síðustu tvö tímabil verið lykilmaður hjá Sunderland og Coventry City á frábærum tímabilum hjá þessum félögum. Fyrst fór hann upp úr C-deildinni með Sunderland og svo komst hann alla leið í úrslitaleik um sæti í úrvalsdeildinni Coventry. Núna fær hann aðra tilraun til að komast upp úr Championship deildinni.
Doyle er spenntur fyrir Leicester þar sem hann mun starfa undir stjórn Enzo Maresca, sem var aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá City. Þeir þekkjast því vel, sérstaklega eftir að varalið City vann varaliðadeildina undir stjórn Maresca, með Doyle í mikilvægu hlutverki.
„Enzo hefur bætt mig mikið sem leikmann og ég hlakka til að starfa meira með honum," sagði Doyle meðal annars við undirskriftina.
Welcome to Leicester, Callum Doyle! ???? pic.twitter.com/SMZg3IqZGA
— Leicester City (@LCFC) July 14, 2023



