Fotbolti.net
15.07.23 - 16:40
Ívan Guðjón Baldursson

Parisi til Fiorentina (Staðfest) - Arthur á leiðinni

Parisi til Fiorentina (Staðfest) - Arthur á leiðinni
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Fiorentina er búið að staðfesta kaup á bakverðinum öfluga Fabiano Parisi sem var afar eftirsóttur í sumar.

Parisi er 22 ára gamall og gerir fimm ára samning við Fiorentina eftir að hafa verið algjör lykilmaður í liði Empoli undanfarin ár.

Fiorentina borgar um 10 milljónir evra til að kaupa Parisi, sem var lykilmaður í U21 landsliði Ítalíu en á eftir að taka stökkið upp í A-landsliðið.

Parisi mun starfa náið samhliða Cristiano Biraghi, sem er 30 ára vinstri bakvörður Fiorentina og hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin ár. Biraghi er búinn að skrifa undir nýjan samning sem bindur hann við Flórens næstu tvö árin.

Þá er félagið að ganga frá félagsskiptum brasilíska miðjumannsins Arthur Melo frá Juventus.

Arthur kemur á eins árs lánssamningi frá Juventus með kaupmöguleika, en Juve borgar upp hluta af launum Arthur.

Arthur er 26 ára gamall og var hjá Liverpool á láni á síðustu leiktíð, en tókst ekki að spreyta sig nema í nokkrar mínútur. 

Hann á 63 leiki að baki á tveimur árum hjá Juve.

Fiorentina mun líklega selja Sofyan Amrabat í sumar þar sem bæði Manchester United og Liverpool eru áhugasöm.

Parisi til Fiorentina (Staðfest) - Arthur á leiðinni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.