Fotbolti.net
15.07.23 - 19:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ramsey skrifaði undir samning með syni sínum (Staðfest)

Ramsey skrifaði undir samning með syni sínum (Staðfest)
Canon

Mynd: Cardiff/Twitter

Aaron Ramsey er kominn heim til Cardiff og skrifar undir tveggja ára samning.

Hann er uppalinn hjá félaginu og er yngsti leikmaður í sögu félagsins til að spila fyrir aðalliðið. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 2007 aðeins 16 ára gamall.

Hann gekk til liðs við Arsenal árið 2008 en snéri aftur á láni til Cardiff árið 2011. Hann spilaði á síðasta tímabili með Nice en rifti samningnum til að ganga til liðs við Cardiff.

Sonny Ramsey, elsti sonur Aaron Ramsey skrifaði undir samning við félagið með föður sínum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.