Fotbolti.net
15.08.22 - 20:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rúnar Alex til Alanyaspor (Staðfest)

Rúnar Alex Rúnarsson.

Rúnar Alex Rúnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er genginn í raðir tyrkneska félagsins Alanyaspor.
Hann kemur til Alanyaspor á láni frá enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal út þessa leiktíð.

Rúnar Alex á enn tvö ár eftir af samningi sínum við Arsenal.

Alanyaspor hafnaði í fimmta sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Rúnar Alex, sem er 27 ára, gekk til liðs við Arsenal árið 2020 og hefur spilað alls sex leiki leiki fyrir félagið. Íslenski landsliðsmarkvörðurinn var á láni hjá Leuven í Belgíu á síðustu leiktíð og stóð sig vel þar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.