Afturelding fær Rúrik frá KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding hefur fengið Rúrik Gunnarsson á láni frá KR út tímabilið. Rúrik er fæddur árið 2005 og er annar leikmaðurinn sem Afturelding fær fyrir lok gluggans því Ivo Braz kom til félagsins frá Ægi í gær.
Rúrik er unglingalandsliðsmaður sem kom í KR frá Breiðabliki fyrir síðasta tímabil og lék með KV á síðasta tímabili.
Hann er miðjumaður sem á að baki fjóra leiki fyrir U17 landsliðið.
Í sumar kom hann við sögu í þremur leikjum með KR; tveimur deildar leikjum og þá var hann í byrjunarliðinu í bikarleik gegn Þrótti Vogum.
Afturelding er í toppsæti Lengjudeildarinnar og ætlar sér beint upp í Bestu deildina. Liðið hefur hikstað í síðustu leikjum og einungis fengið eitt af síðustu níu mögulegum. Liðið á leik gegn Vestra annað kvöld.