Atalanta selur Boga og Mæhle (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Atalanta er búið að selja Jérémie Boga, knáan kantmann frá Fílabeinsströndinni, til OGC Nice í Frakklandi og danska vængbakvörðinn Joakim Mæhle til VfL Wolfsburg í Þýskalandi.
Ítalska félagið fær tæpar 20 milljónir evra fyrir Boga sem er 26 ára gamall og braust fram í sviðsljósið sem leikmaður Sassuolo en tókst aldrei að springa almennilega út.
Hann fann aldrei taktinn eftir félagsskiptin til Atalanta og skoraði aðeins fjögur mörk í 47 leikjum, þar sem hann kom oftar en ekki inn af bekknum.
Atalanta fær þá tæpar 15 milljónir evra fyrir Mæhle sem er jafnaldri Boga, eða 26 ára gamall. Mæhle spilaði 96 leiki á þremur árum hjá Atalanta.
Þeir eru báðir búnir að skrifa undir fjögurra ára samning við sín nýju félög.
Atalanta er einnig búið að selja Rasmus Höjlund, Matteo Pessina, Ruslan Malinovskyi og Sam Lammers í sumar og þarf félagið að styrkja sig fyrir komandi átök í Evrópudeildinni.
Sead Kolasinac, Michel Adopo, Mitchel Bakker, Gianluca Scamacca og El Bilal Toure eru hins vegar komnir til félagsins.


Mynd: Getty Images




