Fotbolti.net
15.08.23 - 22:06
Anton Freyr Jónsson

Bjarni Guðjón samdi við Val (Staðfest)

Bjarni Guðjón samdi við Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hinn 19 ára gamli Bjarni Guðjón Brynjólfsson er búinn að semja við Val og mun hann ganga í raðir félagsins eftir tímabilið. Valur kaupir hann frá Þór en lánar hann til baka út tímabilið. 

Bjarni Guðjón skrifaði undir á Hlíðarenda í kvöld en Valur lánar hann til baka í Þór þar sem hann klárar tímabilið með uppeldisfélagi sínu.

Val Bjarna stóð á milli Vals og KR í endann en fleiri félög, þar á meðal Breiðablik, voru áhugasöm um að fá Bjarna. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net voru þó einungis tvö félög sem fengu samþykkt tilboð og voru það KR og Valur.

Kaupverðið er talið vera á bilinu 5-6 milljónir og fær Þór samkvæmt heimildum Fótbolta.net prósentu af næstu sölu.

Bjarni Guðjón Brynjólfsson er miðjumaður sem á að baki 73 leiki með Þór og hefur hann skorað í þeim 15 mörk. Þá tók Bjarni Guðjón einnig þátt í EM U-19 ára verkefni Íslands í sumar og byrjaði hann tvo af þremur leikjum Íslands á því móti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.