Casadei til Leicester og Gassama til Sheff Wed (Staðfest)

Cesare Casadei.

Mynd: Getty Images

Cesare Casadei.

Mynd: Getty Images
Leicester hefur fengið ítalska miðjumanninn Cesare Casadei lánaðan frá Chelsea út tímabilið.
Hann var lykilmaður hjá U20 landsliði Ítalíu sem komst í úrslit HM U20 landsliða í Argentínu í sumar. Þar hlaut hann gullboltann sem besti leikmaður mótsins og gullskóinn sem sá markahæsti.
Þessi tvítugi leikmaður var seinni hluta síðasta tímabils hjá Reading. Leicester féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og leikur í Championship-deildinni.

Það eru fleiri félagaskiptafréttir úr Championship-deildinni en nýliðar Sheffield Wednesday hafa tryggt sér framherjann Djeidi Gassama sem er keyptur frá Paris St-Germain.
Gassama er nítján ára og hefur spilað einn aðalliðsleik fyrir PSG. Á síðasta tímabili var hann lánaður til Eupen í Belgíu þar sem hann skoraði tvö mörk í nítján leikjum.

Djeidi Gassama.

Mynd: Getty Images