Fotbolti.net
15.08.23 - 13:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

David Raya í Arsenal (Staðfest)

Markvörðurinn með hundinum Win.

Markvörðurinn með hundinum Win.

Canon

Mynd: Arsenal

David Raya er genginn í raðir Arsenal á láni frá Brentford út tímabilið. Arsenal er sagt greiða Brentford 3 milljónir punda fyrir lánið og félagið getur keypt leikmanninn á 27 milljónir punda á meðan láninu stendur.

Raya verður 28 ára í næsta mánuði. Hann er spænskur markvörður, fæddur í Barcelona en kom nokkuð ungur til Englands inn í unglingastarfið hjá Blackburn.
Hann hefur varið mark Brentford undanfarin ár og var einn allra besti markvörður úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Hann var orðaður við Tottenham en félagið vildi ekki greiða 40 milljónir punda fyrir hann. Raya átti eitt ár eftir af samningi sínum en framlengdi um tvö ár áður en hann fór á láni til Arsenal.

Raya verður í treyju númer 22 hjá Arsenal. „Við bjóðum David velkominn til okkar á láni út tímabilið frá Brentford. Davið er markvörður í hæsta gæðaflokki sem hefur verið stöðugur á háu 'leveli' með Brentford í úrvalsdeildinni. Með því að fá David þá erum við bæta við gæðum og breidd í okkar hóp til að geta náð eins góðum frammistöðum og hægt er í öllum keppnum," sagði Edu sem er yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal.

<b>Enski boltinn</B> - Alvöru gæði í Enzo og Onana slapp með skrekkinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.