Fotbolti.net
15.08.23 - 06:00
Auglýsingar

Fótboltaspurningabókin 2023 komin út (Staðfest)

Fótboltaspurningabókin 2023 komin út (Staðfest)
Canon

Mynd: Hólar

Fótboltaspurningar 2023, bókin sem allir knattspyrnuunnendur hafa beðið eftir, er komin út. Höfundur þessarar vinsælu bókaraðar er Guðjón Ingi Eiríksson og fer hann venju samkvæmt um víðan völl.

Hver af þessum knattspyrnustjórum ber millinafnið Norbert: David Moyes, Jürgen Klopp eða Eddie Howe?

Um knattspyrnuiðkun í hvaða bæjarfélagi fjallar bókin KNATTSPYRNUBÆRINN eftir Björn Þór Björnsson?

FHL er skammstöfun fyrir kvennalið á Austurlandi en að baki því standa í rauninni þrjú félög. Hvað heita þau?

Hvaða ár fæddist Cristiano Ronaldo?

Hvaða franski knattspyrnukappi, sem nú hefur lagt fótboltaskóna á hilluna, sagði: "Égh grét einu sinni vegna þess að ég átti ekki fótboltaskó en einn daginn mætti ég manni sem var ekki með fætur?"

Hvaða lið spilar heimaleiki sína á Selhurst Park?

Þetta og margt fleira í þessari bráðskemmtilegu bók sem fæst í öllum bókabúðum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.