Fotbolti.net
15.08.23 - 16:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Neymar til Al Hilal (Staðfest)

Neymar til Al Hilal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíumaðurinn Neymar hefur fært sig um set til Sádi-Arabíu og er hann búinn að skrifa undir samning við Al Hilal.
Al Hilal borgar um 80 milljónir punda fyrir brasilísku stórstjörnuna sem kveður núna Paris Saint-Germain í Frakklandi.

Neymar varð dýrasti fótboltamaður sögunnar - og er það enn - þegar hann var keyptur til PSG frá Barcelona fyrir um 200 milljónir punda.

Neymar er 31 árs gamall og hefur raðað inn mörkum og stoðsendingum frá komu sinni til PSG, þar sem hann hefur í heildina komið að 195 mörkum í 173 leikjum með félaginu. Honum tókst þó ekki að hjálpa félaginu að vinna Meistaradeildina.

Neymar skrifar undir tveggja ára samning í Sádi-Arabíu og er enn eitt stóra nafnið sem fer þangað í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.