Robin Gosens til Union Berlin (Staðfest)

Mynd: Union Berlin

Mynd: Union Berlin
Þýski landsliðsmaðurinn Robin Gosens er genginn til liðs við Union Berlin frá Inter fyrir 15 milljónir evra.
Gosens kom til Inter frá Atalanta árið 2022 en hefur ekki náð að brjóta sér leið inn í liðið hans Simone Inzaghi.
Bayer Leverkusen, Wolfsburg og Union Berlin voru öll á eftir Gosens í sumar en hann valdi Union, sem mun spila í Meistaradeildinni á þessu tímabili, eftir frábæran árangur á síðustu leiktíð.
Gosens fór í læknisskoðun hjá Union á dögunum og voru kaupin staðfest í dag.
Hann ætti því að vera klár fyrir fyrsta leik Union í þýsku deildinni um helgina er liðið mætir Mainz.

E I S E R N, Robin! ? pic.twitter.com/N2t0sHnLkE
— 1. FC Union Berlin (@fcunion) August 15, 2023