Fotbolti.net
15.08.23 - 17:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Steven Lennon í Þrótt (Staðfest)

Steven Lennon.

Steven Lennon.

Canon

Mynd: Þróttur

Lengjudeildin
Það er nóg að gera á skrifstofunni hjá Þrótti í Laugardalnum þessa stundina. Steven Lennon er núna kominn til félagsins á láni frá FH.

Fótbolti.net greindi fyrst frá þeim tíðindum að Þróttarar væru að reyna að fá Lennon.
„Steven hefði viljað spila meira en hann hefur gert fyrir FH-liðið í sumar og eftir að við tókum samtalið þá var það sameiginleg niðurstaða að leyfa honum að fara," segir í tilkynningu FH en hinn 35 ára gamli Lennon hefur í sumar spilað níu leiki í Bestu deildinni og skorað eitt mark.

Lennon hefur spilað með FH frá árinu 2014 og hefur verið frábær fyrir Fimleikafélagið á þessum tíma.

Samningur skoska framherjans við FH rennur út í lok tímabilsins.

Þróttur hefur sogast niður í fallbaráttu í Lengjudeildinni eftir góða byrjun á tímabilinu. Liðið er núna aðeins einu stigi frá fallsvæðinu. Lennon er með tengingu inn í Þrótt því þar er Sam Hewson, fyrrum liðsfélagi hans í Fram og FH, leikmaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.