Valur fær Dana sem á tvo landsleiki (Staðfest) - Eva kölluð til baka

Eva Stefánsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Valur hefur heldur betur styrkt sig í félagaskiptaglugganum sem er núna í gangi og núna á gluggadeginum hafa tveir leikmenn til viðbótar bæst við hópinn.
Valur hefur samið við dönsku landsliðskonuna Laura Frank. Hún er 24 ára gömul og er varnarmaður.
Hún á að baki tvo A-landsleiki - árið 2018 - fyrir Danmörku en hún spilaði síðast fyrir Fortuna Hjörring í dönsku úrvalsdeildinni.
Frank er annar danski leikmaðurinn sem Valur fær í þessum glugga. Áður samdi félagið við Lise Dissing sem leikur í stöðu framherja. Sú á að baki leiki fyrir U23 landslið Danmerkur.
Auk þess hefur Valur bætt við sig þremur íslenskum landsliðskonum; Anna Björk Kristjánsdóttir, Amanda Andradóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir sömdu við félagið í þessum glugga.
Eva Stefánsdóttir hefur þá verið kölluð til baka úr láni frá HK. Eva, sem er fædd árið 2005, hefur spilað tíu leiki fyrir yngri landslið Íslands. Í sumar hefur hún spilað ellefu leiki fyrir HK í Lengjudeildinni og skorað í þeim eitt mark.
Valur er sem stendur á toppi Bestu deildarinnar með 33 stig, líkt og Breiðablik. Það er áhugaverð toppbarátta framundan.