Fotbolti.net
15.09.20 - 12:19
Elvar Geir Magnússon

Daily Star fjallar um að Rúnar Alex hafi eytt tísti um Wenger

Daily Star fjallar um að Rúnar Alex hafi eytt tísti um Wenger
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Rúnar Alex Rúnarsson er nálægt því að ganga í raðir enska stórliðsins Arsenal til að fylla skarð varamarkvarðarins Emiliano Martínez sem er að fara til Aston Villa.

Um leið og fréttirnar bárust um að Rúnar Alex gæti verið á leið til Arsenal fóru enskir stuðningsmenn að grandskoða hvaða leikmaður hér væri á ferðinni.

Grófu þeir upp færslu frá markverðinum á Twitter frá 2011.

„Arsene Wenger er örugglega heimskasti maður á þessu jarðríki! French F***" skrifaði Rúnar Alex og hefur Daily Star gert það að fréttaefni undir fyrirsögninni: Alex Runar Runarsson deletes X-rated Arsene Wenger tweets ahead of Arsenal transfer.
Rúnar Alex hefur fjarlægt færsluna en hún hefur vakið umtalað á spjallborðum stuðningsmanna en Wenger lét af störfum sem stjóri liðsins 2018 eftir að hafa gert liðið að Englandsmeisturum í þrígang.

Rúnar Alex er 25 ára og er hjá Dijon í Frakklandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.