Fotbolti.net
15.09.22 - 14:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þetta eru leikmennirnir sem Heimir tekst á við í sínu fyrsta verkefni

Lionel Messi.

Lionel Messi.

Canon

Mynd: Getty Images

Argentína hefur opinberað landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleiki gegn Hondúras og Jamaíka síðar í þessum mánuði.
Lionel Messi og fleiri öflugir leikmenn eru í hópnum sem má sjá í heild sinni hér að neðan.

Sögur segja að Heimir Hallgrímsson sé að taka við landsliði Jamaíka og verður hans fyrsta verkefni einmitt gegn þessum leikmannahópi Argentínu.

Í hópnum eru einnig leikmenn eins og Angel Di Maria, Paulo Dybala og Lisandro Martinez.

Heimir hefur áður stýrt landsliði gegn Argentínu; hann stýrði Íslandi gegn Lionel Messi og félögum á HM 2018 en sá leikur endaði eftirminnilega með 1-1 jafntefli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.