Fotbolti.net
15.09.26 - 22:56
Kári Snorrason

Segir framtíð Höskuldar vera hjá Blikum - Val hefur áhuga á Kristófer

Fyrirliði Blika orðaður við Val.

Fyrirliði Blika orðaður við Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, hefur verið sterklega orðaður við Val og eru háværar raddir sem segja að hann muni enda á Hlíðarenda eftir tímabil.

Samningur Höskuldar rennur út eftir næsta tímabil og því ljóst að Valur þyrfti að kaupa hann frá Breiðabliki. Halldór Árnason, sem þjálfaði Höskuld á árunum 2020-25 hjá Breiðabliki, mun taka við Val eftir tímabilið.

Fótbolti.net spurði Ólaf Inga Skúlason út í orðróminn og hvort að málið væri eitthvað sem hefði komið á hans borð.
Er Höskuldur á leið í Val?
TENGT EFNI

Er Höskuldur á leið í Val?

„Nei, en maður hefur auðvitað bara séð þetta. Eins og hann sagði sjálfur er þetta bara æsifréttamennska eða slúður út í bæ. Hann er samningsbundinn okkur og Bliki í gegn. Ég hef engar áhyggjur af því,“ sagði Ólafur Ingi um orðróminn.

Hefur þú rætt við hann um framtíðina? „Að sjálfsögðu. Framtíð hans er hjá Blikum, það er bara þannig.“

Kristófer Ingi samningslaus eftir tímabil
Valur hefur sömuleiðis áhuga á Kristófer Inga Kristinssyni samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Samningur framherjans rennur út eftir tímabil.

Kristófer hefur sjálfur tengingu í Val þar sem Kristinn Ingi Lárusson, stjórnarmaður í Val, er faðir Kristófers. Hlíðarendafélagið hafði áhuga á Kristófer fyrir tímabil en Breiðablik hafnaði tilboði Valsmanna.

„Við erum í samningaviðræðum við Kristófer og við viljum halda honum. Hann hefur verið frábær fyrir okkur í sumar og undanfarin ár. Hann veit hvað viljum gera og ég held að það sé á góðri leið,“ sagði Ólafur Ingi aðspurður um framtíð Kristófers.
Samningslaus eftir tímabil.

Samningslaus eftir tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Ingi, faðir Kristófers, er stjórnarmaður í Val.

Kristinn Ingi, faðir Kristófers, er stjórnarmaður í Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Skúla: Auðvitað var þetta skrýtið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.