Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. október 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Aðalfundur KÞÍ fer fram í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands (KÞÍ), verður haldinn í dag, föstudaginn 15. október nk., kl. 18:00 í Fylkishöll.

Upphaflega átti að halda fundinn eigi síðar en í lok apríl á þessu ári en vegna aðstæðna í samfélaginu reyndist það ekki unnt. Af þeim sökum var ákveðið að halda fundinn að hausti.

Dagskrá fundar samkvæmt 10. gr. laga KÞÍ verður eftirfarandi:

• Fundarsetning.

• Kosning fundarstjóra og fundarritara.

• Skýrsla stjórnar.

• Reikningar félagsins.

• Lagabreytingar.

• Kosning stjórnarmanna samkvæmt ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga KÞÍ.

• Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.•

Ákvörðun um árgjald samkvæmt 6. gr. laga KÞÍ.

• Önnur mál.

Léttar veitingar verða á boðstólum

Stjórn KÞÍ hvetur félagsmenn sína til að mæta

Stjórn KÞÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner