Fotbolti.net
15.10.21 - 14:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rashford verður í hópnum á morgun - Vill framlengja við Lingard

Rashford verður í hópnum á morgun - Vill framlengja við Lingard
Canon

Mynd: EPA

Raphael Varane verður fjarri góðu gamni vegna meiðsla næstu vikunnar. Ole Gunnar Solskjær á þá ekki von á því að Fred og Edinson Cavani spili með Manchester United á morgun þegar liðið mætir Leicester.

„Victor Lindelöf og Eric Bailly spiluðu með sínum landsliðum sem var gott upp á spilformið. Fred og Edinson spiluðu heilan leik og við ætlum að gefa þeim tíma til að safna kröftum. Harry Maguire æfði á grasi í gær svo það lítur þokkalega út með hann í framhaldinu.
„Marcus Rashford er í hópnum en ég get ekki sagt ykkur hvort hann byrji á morgun. Hann hefur átt flotta viku og er klár í slaginn," sagði Solskjær á fréttamannafundi í dag. Líklegt er að Bailly og Lindelöf verði miðvarðapar United á morgun.

Solskjær tjáði sig einnig um stöðu Jesse Lingard sem er að renna út á samningi næsta sumar. Solskjær vill halda Lingard hjá félaginu.

„Við viljum framlengja samning hans því við lítum á hann sem mikilvægan leikmann fyrir okkur. Þetta er undir honum komið, og mér líka, að hann spili meira því hann á það skilið. Vonandi getum við klárað samningamálin því við kunnum að meta hann," sagði Solskjær.
Jesse Lingard

Jesse Lingard

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.