Aron: Ólýsanlegur stuðningur
Auglýsing

Aron á fréttamannafundi landsliðsins í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég get ekki beðið. Það var hátt tempó á æfingu og menn eru klárir,\" sagði Aron Einar Gunnarsson fyrirliði Íslands við Fótbolta.net í dag en liðið er klárt í leikinn gegn Tékkum annað kvöld.
,,Það er gaman að spila undir pressu og þetta verður bara gaman á morgun. Þetta verður skemmtilegur leikur hjá liðum sem eru að berjast. Bæði lið eru með leikmenn með mikla hlaupagetu og báðir hóparnir líta út fyrir að vera samheldnir og berjast fyrir hvorn annan. Þetta verður vonandi skemmtilegur leikur til þess að horfa á.\"
Aron mun eiga í höggi við Tomas Rosicky leikmann Arsenal en hann er ein skærasta stjarna Tékka.
,,Ég hef gaman að honum. Hann er góður leikmaðiur sem vinnur mikið. Það er alltaf gaman að fylgjast með leikmönnum sem eru góðir en vinna líka eins og hestar. Hann er virkilega góður leikmaður og það verður gaman að kljást við hann á morgun.\"
Yfir 700 stuðningsmenn íslenska landsliðsins munu mæta á leikinn á morgun.
,,Maður hefði búist við svona stuðning á Norðurlöndunum en stuðningurinn sem við erum að fá er gífurlegur og í raun ólýsanlegur. Maður bjóst ekki við þessu þegar maður var að byrja í þessu að fá svona marga stuðningsmenn á útileik. Vonandi náum við að spila skemmtilegan leik þannig að áhorfendurnir fari heim til Íslands með bros á vör,\" sagði Aron.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.