Gamli refurinn Marcelo Lippi hefur sagt upp störfum sem landsliðsþjálfari Kína í annað skipti á þessu ári.
Hinn 71 árs gamli Lippi hætti í janúar eftir að Kína datt út í 8-liða úrslitum í Asíubikarnum.
Fabio Cannavaro tók við en hann var einungis í starfi í tvo leiki áður en Lippi tók aftur við í maí.
Hinn 71 árs gamli Lippi hætti í janúar eftir að Kína datt út í 8-liða úrslitum í Asíubikarnum.
Fabio Cannavaro tók við en hann var einungis í starfi í tvo leiki áður en Lippi tók aftur við í maí.
Lippi ákvað hins vegar að segja af sér í dag eftir 2-1 tap Kína gegn Sýrlandi í undankeppni HM í gær. Kína er nú fimm stigum á eftir Sýrlandi í riðlinum.
„Ég var vel launaður og ég tek fulla ábyrgð. Ég segi hér með upp störfum og verð ekki áfram þjálfari Kína," sagði Lippi.
Athugasemdir