Fotbolti.net
15.11.22 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Englendingar opinbera treyjunúmer sín

Maguire er númer 6.

Maguire er númer 6.

Canon

Mynd: EPA

Það styttist óðum í HM en opnunarleikur mótsins er þann 20. nóvember næstkomandi.

Það eru margir spenntir fyrir því að sjá enska landsliðið á mótinu. Þeir eru í flóknum riðli með Bandaríkjunum, Wales og Íran.
Englendingar tilkynntu hóp sinn í síðustu viku. James Maddison, leikmaður Leicester, er í hópnum eftir að hafa ekki fengið kallið í síðustu verkefni.

Callum Wilson, sóknarmaður Newcastle, er með. Marcus Rashford snýr aftur í hópinn og þá eru Conor Gallagher, Kalvin Phillips og Jordan Henderson allir með.

Í gærkvöldi voru treyjunúmer Englendinga fyrir mótið opinberuð og hér fyrir neðan má sjá hvernig þau líta út.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.