Fotbolti.net
15.11.23 - 15:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þórdís Elva í Vaxjö (Staðfest)

Þórdís Elva Ágústsdóttir.

Þórdís Elva Ágústsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Miðjumaðurinn öflugi, Þórdís Elva Ágústsdóttir, hefur yfirgefið herbúðir Vals og er gengin í raðir Vaxjö í Svíþjóð.

Sænska félagið greinir frá þessum tíðindum í dag.
Þórdís Elva, sem er 23 ára gömul, er uppalin í Haukum og steig hún fyrstu skref í meistaraflokki þar. Hún spilaði með Fylki frá 2019 til 2021 en hefur svo orðið Íslandsmeistari með Val undanfarin tvö ár.

Hún átti mjög svo gott sumar með Val í ár er liðið varð Íslandsmeistari á sannfærandi hátt. Hún var einn af betri miðjumönnum Bestu deildarinnar.

Hún skrifar undir samning við Vaxjö sem gildir til ársins 2025 en liðið hafnaði í áttunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu sem var að klárast.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.